Aðalvalmynd

Klukkan

Teljari

Tenglar

FloridaRósa María Arnórsdóttir

Kellan mætt til florida. Orðin vel brún og komin með eitthvað brjálaðislegt ofnæmi út um allt. en kellan fór og fékk sér lyf við því. Góð. Blogga meira á morgun

Fékk senda RósRósa María Arnórsdóttir

Ég hafði aldrei fengið send blóm eða rós þar til á föstudaginn. Þá kom maður til mín í vinuna frá koparvogsblómum eitthvað svoleiðis með rós. Því fylgdi kort sem var stílað til mín. Vá ég roðnaði bara eins og ég veit ekki hvað. Varð eldrauð í framan. Ég opnaði kortið og las, það var frá svenna og hann var að senda mér ástafkveðju og bjóða mér að koma til sín til florida. Eftir mikla um hugsun tók ég þá ákvörðun að þyggja þessa stóru gjöf. Og er ég nú ekki vön að þyggja svona gjafir. Ég reddaði mér pössun og svenni bókaði farið. Ég á bara eftir að redda mér aur til að taka með mér. Ég fer 29 Júni og ætla að koma aftur 8 Júli. Ég bara get ekki beðið eftir að fara út og hitta Svenna. Hann var víst eitthvað búinn að lofa að stjana við mig þarna úti. En ég vona að hann geri nú ekki of mikið af því svo ég verði nú ekki ofdekruð frekjudós. Kannski ég reyni bara að stjana við hann líka og gera eitthvað fyrir hann. Gæti svo sem eldað eitthvað gott handa honum. En ætla ekki að ræða meira um það því ég veit að hann mun lesa.

En allavegna þá hlakka mér ekkert smá til að hitta hann.

Kossar og knús

Langt síðan síðastRósa María Arnórsdóttir

Hei kæru vinir.

Gellan er búin að bóka farið til Svenna. Ég ætla að byrja ferðina í New york og fara svo þaðan til florida og sleikja strandirnar þar, og kyssa krókudíla, ekki leiðilegt þar. Gellan ætlar að fara í september og ætar að vera í 2 vikur. Svenni er búinn að lofa að stjana við mig þar svo ég efast um að mér eigi eftir að leiðast eitthvað þar.

Svo í Júlí verður ferðini haldið hringinn í kringum landið. Og er ég búin að eyða miklum tíma á netinu að kanna staði til að fara á og skoða. Ég ætla soldið að eyða sumrinu í að skoða landið okkar. Langar rosa mikið í hellaferð og fara á vestfirðina. En það er aldrei að vita hvað mér dettur í hug að gera í sumar.

Jæja ég ætla að láta þetta næja í bili, það er annars allt gott að frétta og mikið að gera hjá mér eins og er.
p.s. ég var að fá launa hækkun í vinunni :)

Kossar og knús Rósa

Katrín litla er lasin :)Rósa María Arnórsdóttir

Loks þegar það er logn í keflarvík ( sem b.t.w. gerist aldrei ) þá er Katrín litla lasin. Hún er með þvagfærasýkingu og er komin með mikin hita. Við eyddum öllum gærdeginum á landspítalanum þar sem hún fór í geggnum nokkrar ransóknir. Litla daman er komin á pensilín og liggur bara í sófanum.

En allavegna þá er bara gott að frétta af okkur þrátt fyrir veikindin. Ég ætla að skella nokkrum myndum hérna inn. Svo það er um að gera að kíkja á þær og segja mér svo hvað ykkur finnst.

Kossar og knús
Rósa og Katrín ýr litla lasin

Gleðilegt sumarRósa María Arnórsdóttir

Loks loks er sumarið komið.

Ég og Katrín erum búnar að bíða lengi eftir því að það fari að hitta og sólin fari að skýna meira. Sú stutta heldur en áfram að stækka og talar út í eitt. Hún dansar og syngur allan daginn. Ekki slæmt það enda listamaður á ferð.

Við ætlum að ferðast mikið í sumar og gera margt skemmtilegt. Ég sjálf fer til florida í september og var svo að spá í að taka Katrínu með mér til köben. Langt síðan hún hefur komið þangað og komin timi að rifja upp dönskuna hjá henni.

Gleðilegt sumar allir saman.

Ætlar þú á þjóðhátíð????

Gleðilega páskaRósa María Arnórsdóttir

Snildar Páska helgi.

Jamm þetta var alveg snilldar páskahelgi.

Það leiðilegasta sem gerðist var:
1. Ég týndi myndarvélinni
2. Gat ekkert á skíðumm vegna þvinku.
3. Þyngdist um 3 kg og kemst ekki í buxur.
4. Ég kynntist því hvernig karlmenn kyssa ÖMULEGA

Það skemmtilegasta var.
1. Stelpurnar eru snillingar.
2. Strákarnir drukku og skemmtu okkur
3. Drakk rosa mikið af áfengi.
4. Fékk frítt í sjallan




JAmm

Og svo verð ég svo full þegar ég er leiðileg.... hehe


Hei hóRósa María Arnórsdóttir

Hún Katrín átti afmæli í gær og fékk hún pakka strax um morguninn frá mömmu sinni, og fullt af hringingum yfir daginn.

Það er voða lítið annað að segja frá.

Það eru að koma myndir inn á síðuna :)


Það skiptir mig engu hvort þú sért handflakari í fristihúsi eða flugmaður, ég myndi samt ekki sofa hja þér. hehe

........Rósa María Arnórsdóttir

Afmæli bleikudrotningarinnar gekk eins og í sögu og læddu inn pakkar og gestir. Eins og alltaf þegar ég baka fyrir afmæli þá er allt of mikill matur. Takk fyrir komuna og alla pakkana. Katrín Ýr var hæðst ánægð með allar gjafirnar.

Hann Kristinn Adolf vinur minn eða Addi trúbador á afmæli í dag, og vil ég senda honum bestu afmæliskveðjur og vona að hann dagur verði skemmtilegur.

Svo á hún Hrafnhildur Lilja glæsilega vinkona mín afmæli á  miðvikudagu og verður hún 28 skvísa. Ég sendi henni líka bestu afmæliskveðjur og á hún von á glæsilegum pakka á næstunni. Hún er búin að vera rosa dugleg að koma sér í form og mæta í ræktina. Eitthvað annað en ég, ég er meira bara að safna spiki.

Svo á Katrín alvöru afmæli á þriðjudaginn 27 mars og þá verður hún 6 ára skvísa. Ætli maður baki ekki eina köku handa henni þá í tilefni dagsins. En Katrín er voða spennt að byrja í skólanum og getur bara ekki beðið. Hún eiðir miklum tíma í að máta skólatöskuna sína sem vinkonur mínar og Elli gáfu henni í afmælisgjöf.

Over and out Rósa

Ég er að baka, baka í form.......Rósa María Arnórsdóttir

Þá er helgin gengin í garð og ég er búin að baka fyrir afmæli bleikudrotningarinnar. Við ætlum að halda stóra veislu á morgun. Katrín Ýr verður 6 ára og útskrifast brátt úr leikskóla og byrjar svo í skóla í haust.

Leikskóla krakkarnir koma hingað á morgun um 1 leitið og fjölskyldan kemur um 4. Svo það verður rissa party og fullt af gestum.

Ég er sko alveg búin á því eftir allan baksturinn og svefnleysið síðustu 3 daga.

Smá afmæliskveðja til Simma en hann verður (25 ára) á morgun hehe
Ullandi. Til hamingju Simmi minn og vonandi verður dagurinn þinn á morgun góður og skemmtilegur :)

Jæja nóg í bili.

Vonandi verður helgin góð hjá ykkur þótt að veður guðirnir séu í stuði með roki og snjó :)

Kv Rósa

Smá fréttir af mér og mínum...Rósa María Arnórsdóttir

Hæ elsku vinir mínir :)
Ég eyði voða miklum tíma í vinunni eins og er, og vantar alveg allt einkalíf. Ég hef verið að nefna það við vinkonurnar að við verðum að hittast oftar. Ég  held að ég verð bara að halda partý bráðum:)

Afmælið hennar Katrínar verður haldið á sunnudaginn en alvöru afmælið er ekki fyrr en 27 mars. Hún Hrafnhildur verður 28 ára 26 mars. Já við eldumst með hverjum deginum.

Katrín litla er lasin núna, hún sefur messt allan daginn og er með mikin hita. En það eru víst flestir landar okkar veikir.

Ég er búin að fá mína alvöru sekt, jamm það var hraðasekt og var upphæðin ekki lá. En það er svona enda átti ég það alveg skilið þar sem ég keyrði aðeins of hratt. hehe En það er smá saga í kringum þetta, kannski að ég fái Ólöfu til að kommenta um það hérna hehe.
Síða 1 af 4

Könnun

Ferð þú á þjóðhátíð

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Undirsíðukubbur

Gagnasafn